Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 3. 2016 | 07:00

Tvö íslensk lið eldri karlkylfinga v/ keppni í Noregi

Ísland er með tvö lið við keppni í landsliðskeppnum eldri kylfinga í Noregi. Leikið er með forgjöf við Sandefjord og keppt er án forgjafar í Larvik.

Íslenska sveitin var í níunda sæti í forgjafarkeppninni eftir fyrsta keppnisdaginn en hægt er að fylgjast með gangi mála með því að SMELLA HÉR:

Lið Íslands í forgjafarkeppninni er þannig skipað: Ásbjörn Björgvinsson, Jónas Tryggvason, Guðlaugur Kristinsson, Þorsteinn Þórisson, Júlíus Júlíusson, Helgi Ingason.

Í keppni án forgjafar var Ísland í fimmta sæti eftir fyrsta hringinn, hægt er að fylgjast með gangi mála með því að SMELLA HÉR:

Lið Íslands er þannig skipað: Gauti Grétarsson, Snorri Hjaltason, Hörður Sigurðsson, Gunnar Þórisson, Sæmundur Pálsson, Sigurður Aðalsteinsson.

Texti: GSÍ