Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson – 28. júlí 2016

Það er Hinrik Gunnar Hilmarsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hinrik var fæddur 28. júlí 1958  og lést 24. mars á þessu ári.  Hinrik eða Hinni eins og hann var oft kallaður af vinum sínum hefði orðið 58 ára í dag.  Sjá má frétt Golfsambands Íslands um andlát Hinriks Gunnars, sem birtist m.a hér á Golf 1 með því að SMELLA HÉR:

Hinrik var flestum kunnugur sem dómari á golfvellinum, en einnig var Hinni í Golfklúbbi Reykjavíkur.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Marta Guðjónsdóttir (57 ára); Árný Lilja Árnadóttir, 28. júlí 1970 (46 ára); Steven Craig Alker, 28. júlí 1971 (45 ára); Þórdís Lilja Árnadóttir (43 árs); Amy Yang, 28. júlí 1989 (27 ára); Moriya Jutanugarn, 28. júlí 1994 (22 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag, innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is