PGA Championship 2016: Jason Day fullur sjálfstrausts
Það var þrumuveður sem gekk yfir Baltusrol með tilheyrandi rigningarflaumi í gær, þriðjudaginn 26. júlí þannig að fyrsti æfingahringurinn fyrir 98. PGA Championship fór fram á þungum flötum sem höfðu verið býsna hraðar í hitanum eftir hádegi.
Ógurlegur hiti var snemma eftir hádegi en í lok eftirmiðdags stóðu kylfingar í vatnsflaumi á mörgum stöðum eftir miklar þrumur, eldingar og rigningarúrhelli.
Starfsmenn PGA of America stöðvuðu leik kl. 16:38 eftir hádegi og áhorfendur gátu leitað skjóls, margir voru samahnhnipraðir í minjagripatjöldum, þar til hlé milli hviða gaf þeim tækifæri á að fara.
Þetta var e.t.v. bara forsmekkurinn á því hvers konar aðstæður kylfingar verða að takast á við í viðleitni þeirra að sigra Wanamaker verðlaunagreip PGA Championship.
Nr. 1 á heimslistnaum, Jason Day, mun reyna að verja fyrsta risamótstitil sinn, sem hann vann á síðast ári í Whistling Straits.
„Mér líður vel með leik minn,“ sagði Day. „Ég er að slá mörg mjög góð högg sem hafa gefið mér sjálfstraust. Ég er tilbúinn í slaginn.“
Day vann 7 titla á síðasta ári og gekk vel í risamótunum var T-10 á Masters og í 8. sæti á Opna bandaríska.
Hugarfarið er aldrei það að hann ætli sér að verja titil, sérstaklega á öðrum velli, markmiðið er alltaf að sigra.
„Ég lít aldrei á mót sem að ég ætli að verja titil,“ sagði Day. „Ég reyni bara að sigra aftur. Það er hugarfarið.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
