Guðrún Brá Björgvinsdóttir er uppáhaldskvenkylfingur Jóhannesar.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2016 | 19:00

Eimskipsmótaröðin 2016: Guðrún Brá efst í kvennaflokki e. 1. dag Borgunarmótsins

Það er heimakonan  Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, sem er efst eftir 1. dag Borgunarmótsins, sem fram fer á Hvaleyrinni í Hafnarfirði, en mótið er hluti Eimskipsmótaraðarinnar. .

Keppt er um Hvaleyrarbikarinn í fyrsta sinn.

Guðrún Brá, lék á 75 höggum eða +4 og er hún með eitt högg í forskot á Berglindi Björnsdóttur úr GR sem lék á 76 höggum í dag. Þetta er fjórða mót tímabilsins á Eimskipsmótaröðinni en mótin verða alls sex á þessu tímabili.

Signý Arnórsdóttir, GK, Íslandsmeistari í golfi 2015 er þriðja á 79 höggum ásamt Særósu Evu Óskarsdóttur úr GKG sem jafnframt klúbbmeistari GKG 2016.

1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 75 (+4)
2 Berglind Björnsdóttir, GR 76 (+5)
3.- 4. Signý Arnórsdóttir, GK 79 (+8)
3.- 4. Særós Eva Óskarsdóttir, GKG 79 (+8)
5.- 6. Helga Kristín Einarsdóttir, GK 81 (+10)
5.- 6. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 81 (+10)