Árny Lilja Árnadóttir og Arnar Geir Hjartarsson klúbbmeistarar GSS 2016. Mynd: GSS
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2016 | 06:45

GSS: Árný Lilja og Arnar Geir klúbbmeistarar 2016 – Arnar Geir með vallarmet á Hlíðarenda!

Meistaramót GSS í eldri flokkum fór fram dagana 6.-9.júlí á Hlíðarendavelli en meistararmót barna og unglinga GSS fór fram 4.-6. júlí 2016.

Þátttakendur í heild voru 52 og keppt í 15 flokkum.

Stemmingin var mjög góð. Lognið fór reyndar mishratt yfir eftir dögum og einnig rigndi duglega á köflum. Þetta hafði einhver áhrif á skor kylfinga, en samt setti Arnar Geir Hjartarson vallarmet á öðrum degi (7. júlí) á hvítum teigum þegar hann spilaði völlinn á 71 höggi eða einu höggi undir pari.

Mikil og hörð keppni var í flestum flokkum og réðust úrslit ekki fyrr en á lokaholum í mörgum flokkunum. Verðlaunaafhending og matur var síðan í mótslok á laugardagskvöldið 9.júlí þar einnig voru veitt ýmis aukaverðlaun. Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir holukeppni GSS sem lauk nýverið.

Þar var það Elvar Ingi Hjartarson sem stóð uppi sem holukeppnismeistari GSS árið 2016.

Elvar Ingi holukeppnismeistari GSS 2016. Mynd: GSS

Elvar Ingi holukeppnismeistari GSS 2016. Mynd: GSS

Árný Lilja Árnadóttir og Arnar Geir Hjartarson eru klúbbmeistarar GSS 2016.

Helstu úrslit í meistaramóti GSS urðu þessi: 

Meistaraflokkur karla-72 holur högg
1. Arnar Geir Hjartarson 324
2. Jóhann Örn Bjarkason 328
3. Elvar Ingi Hjartarson 344

Meistaraflokkur kvenna 72 holur
1. Árný Lilja Árnadóttir 344
2. Dagbjört Rós Hermundsdóttir 358
3. Telma Ösp Einarsdóttir 393

Verðlaunahafar í meistaramóti GSS 2016

Verðlaunahafar í meistaramóti GSS 2016. Mynd: GSS

1.flokkur karla 72 holur
1. Hákon Ingi Rafnsson 352
2. Magnús Gunnar Gunnarsson 362
3. Ásmundur Baldvinsson 371

2.flokkur kvenna 72 holur
1. Elín Gróa Karlsdóttir 527
2. Hanna Dóra Björnsdóttir 531

Öldungaflokkur karla 54 holur
1. Guðmundur Ragnarsson 277
2. Guðmundur Gunnarsson 284
3. Reynir Barðdal 285

Háforgjafarflokkur karla 27 holur
1. Þórður Ingi Pálmarsson 176
2. Atli Freyr Kolbeinsson 225

Háforgjafarflokkur konur 27 holur
1. Hafdís Skarphéðinsdóttir 176
2. Sylvía Dögg Gunnarsdóttir 225

Byrjendaflokkur karlar – 9 holur
1. Sigfús Ólafur Guðmundsson 59
2. Guðmundur Kristján Hermundss.69
3. Sigurður Bjarni Rafnsson

Byrjendaflokkur kvenna – 9 holur
1. Ingibjörg Ásta Sigurðardóttir
2. Sigríður Svavarsdóttir

Verðlaunahafar Golfmaraþons GSS 2016

Framtíðn björt hjá GSS. Flottir golfkrakkar!!!! Verðlaunahafar Golfmaraþons GSS og meistaramóts barna og unglinga GSS 2016  Mynd: GSS

Úrslit meistaramóts barna GSS, haldið 4.-6. júlí, voru eftirfarandi:
14 ára og yngri strákar
Arnar Freyr Guðmundsson 328

14 ára og yngri stelpur
1 Anna Karen Hjartardóttir 348
2 Hildur Heba Einarsdóttir 359

12 ára og yngri strákar
1 Bogi Sigurbjörnsson 162
2 Reynir Bjarkan B. Róbertsson 180
3 Fannar Orri Pétursson 241
4 Alexander Franz Þórðarson 271

Byrjendaflokkur stelpur
1 Rebekka Helena B. Róbertsdóttir 171
2 Una Karen Guðmundsdóttir 176
3 María Rut Gunnlaugsdóttir 208
4 Dagbjört Sísí Einarsdóttir 251

Byrjendaflokkur strákar
1 Tómas Bjarki Guðmundsson 179
2 Jósef Ásgeirsson 191
3 Gísli Kristjánsson 193
4 Brynjar Már Guðmundsson 196

Byrjendur 5 holur
Haukur Rafn Sigurðsson
Bjartmar Dagur Þórðarson
Gunnar Bjarki Hrannarsson
Berglind Rós Guðmundsdóttir

Krakkarnir hressu á Sauðárkróki tóku síðan þátt í Golfmaraþoni 11. júlí s.l. og eftir mótið fór fram verðlaunaafhending í Meistaramóti barna og unglinga.
Fjöldi barna og unglinga, allt frá 4 ára aldri, spiluðu í norðanstrekkingi og sól, en markmiðið var að ná að leika 1000 holur. Foreldrar og eldri meðlimir í klúbbnum lögðu verkefninu einnig lið.
Markmiðið náðist og gott betur því um kvöldmatarleytið var búið að leika 1408 holur. Frábær árangur og lögðu krakkarnir metnað sinn í að safna holum í pottinn.
Í lokin var pizzuveisla og verðlaunaafhending fyrir meistaramót barna og unglinga.