Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2016 | 18:00

GKB: Magnús með sinn fyrsta ás!

Magnús Jóhannsson, kylfingur úr GKB, fór holu í höggi í fyrsta sinn í dag, 25. júní. Hann náði draumahöggi allra kylfinga á 16. braut á Kiðjabergsvelli. Fallegt högg sem fór í háum boga og lenti boltinn um 20 cm frá holu og þaðan rúllaði hann upp í brekkuna ofan við flötina. Stoppaði þar eitt augnablik, en rúllaði svo hægt og rólega en örugglega beint niður í holuna ca 3-4 metra leið til baka.

Magnús notaði 24° Nike-blending kylfu og Taylor Made bolta í draumahögginu. Hann sagði að þetta hafi verið ótrúlegt að horfa á boltann rúlla í holuna og hafi þetta tekið góðan tíma. Eftir hringinn bauð Magnús að sjálfsögðu upp á kampavín í klúbbhúsinu að Kiðjabergi.

Skálað í kampavíni í Kiðjaberginu!

Skálað í kampavíni í Kiðjaberginu!

Golf 1 óskar Magnúsi til hamingju með ásinn!!!