Eva Karen Björnsdóttir, GR, Íslandsmeistari í holukeppni í stúlknaflokki 2015. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2016 | 10:00

U18 ára stúlknalandsliðið valið

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hefur valið U18 stúlknalandsliðið í golfi sem keppir í Evrópukeppni landsliða á Osló golfklúbbnum í Noregi dagana 5.-9. júlí.

Liðið verður þannig skipað:

Elísabet Ágústsdóttir GKG

Eva Karen Björnsdóttir GR

Hulda Clara Gestsdóttir GKG

Ólöf María Einarsdóttir GM

Saga Traustadóttir GR

Zuzanna Korpak GS

Þjálfari: Björgvin Sigurbergsson

Liðsstjóri: Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir

Úlfar segir að það sé virkilega gaman að senda stúlknalandslið á ný eftir nokkura ára hlé, en mikil gróska hefur verið í stúlknagolfinu og þarna séu framtíðarkylfingar kvennalandsliðsins á ferð, haldi þær áfram að æfa og spila af krafti. Fleiri stúlkur voru vel inni í myndinni í þetta lið. Það er því mjög jákvætt að það verði góð samkeppni um sæti í liðinu á næstu árum.