Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2016 | 18:00

Viðtalið: Kristófer Tjörvi Einarsson – GV

Viðtalið í kvöld er við kylfing sem spilaði á Áskorendamótaröð Íslandsbanka og átti þar góðu gengi að fagna og spilar nú á Íslandsbankamótaröðinni, þar sem velgengni hans heldur áfram.  Hér er á ferð gríðarlegt efni, enda ekkert undarlegt; drengurinn bara sver sig í ættina!

Nafn: Kristófer Tjörvi Einarsson.

Klúbbur:   GV.

Hvar og hvenær fæddistu?   Ég fæddist í Reykjavík, 30. janúar 2001.

Hvar ertu alinn upp?  Í Stykkishólmi.

Í hvaða starfi/námi ertu? Ég vinn hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja.

Spilar einhver í fjölskyldunni golf?  Við spilum öll nema yngsti bróðir minn – hann verður 1 árs 2. júlí

Hvenær byrjaðir þú í golfi?  Ég sló fyrsta golfboltann 1 1/2 árs og ég á mynd af því – en byrjaði af krafti 7-8 ára.

Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?  Bara… þetta er það skemmtilegasta sem ég geri.

Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli?  Skógarvellir eru mun skemmtilegri – fíla þá miklu meira miklu, það er miklu harðara á strandvöllum, á skógarvöllum er maður miklu meira inn í einhverju umhverfi.

Hvort líkar þér betur: holukeppni eða höggleikur?   Holukeppni (spurt e. Íslandsmótið í holukeppni).

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir þinn/þínir á Íslandi?  Vestmannaeyjavöllurinn – hann er ótrúlega fallegur.

Vestmannaeyjavöllur er uppáhaldsvöllur Kristófers Tjörva - Völlurinn er ótrúlega fallegur!

Vestmannaeyjavöllur er uppáhaldsvöllur Kristófers Tjörva – Völlurinn er ótrúlega fallegur!

Hefir þú spilað alla velli á Íslandi – Ef ekki nefna hversu marga af þeim 62 golfvöllum Íslands, þú hefur spilað á?  Alla á höfuðborgarsvæðinu 9 – Svona 20-25 velli allt í allt.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum (nema á Íslandi)? La Galiana á Spáni.

Hver er sérstæðasti golfvöllur, sem þú hefir spilað á? La Galliana – hann er upp í fjalli og brautirnar í halla allar.

Hvað ertu með í forgjöf?  3,9.

Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? Á rauðum: 66 á Vestmannaeyjavellinum Á gulum: 69 högg á Vestmannaeyjavelli.

Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu?   2. sætið í Unglingaeinvíginu 2015.

Hefir þú farið holu í höggi?  Nei. Ég á það eftir.

Spilar þú vetrargolf?   Já, stundum ég get alveg skellt mér einn og einn hring.

Hvaða nesti ertu með í pokanum?   Yfirleitt með 3 samlokur, banana, kókómjólk og vatn og stundum hnetur.

Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum?    Já, handbolta, körfubolta og fótbolta.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?  Humar. Uppáhaldsdrykkur? Vatn. Uppáhaldsbók? Syrpa. Uppáhaldstónslist? Bara ég get hlustað á hvað sem er nema óperu; Uppáhaldskvikmynd? The greatest game ever played.  Uppáhaldsgolfbók? Hef aðeins kíkt í sveiflukennslubók.

Notarðu hanska, ef svo er hvaða? Nei, ég er hættur að nota hans.

Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing?    Kvk: Laura Davies; Kk: Tiger Woods þegar hann var upp á sitt besta.

Hvert er draumahollið?  Ég og….. (nefna 3 fylla ráshópinn): Tiger Woods, Rory McIlroy og Jordan Spieth.

Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín?     Titleist 715D2 driver; Titleist 915F 3-tré; Titleist 915H hálvita; TitleistAB2714 4-PW; SM6 50° SM5 56° SM6 60°; TaylorMade Ghost Manta pútter. Uppáhaldskylfan 56°.

Hefir þú verið hjá golfkennara?  Já.

Hver er besti golfkennari á Íslandi? Faðir minn, Einar Magnússon – eini golfkennarinn sem ég hef farið til.

Ertu hjátrúarfullur? Nei.

Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu?  Reyna að komast í atvinnumennsku golfinu. Lifa lífinu.

Hvað finnst þér best við golfið?  Bara skemmtileg, útvera og félagsskapurinn.

Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)?    65%.

Kanntu einhverja skemmtilega sögu af þér á golfvellinum eða geturðu sagt frá einhverju vandræðalegu sem fyrir þig hefir komið í golfi?: Man enga í augnablikinu.

Að lokum: Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Já, maður á aldrei að gefast upp.