Afmæliskylfingur dagsins: Colin Montgomerie – 23. júní 2016
Afmæliskylfingur dagsins er Colin Montgomerie. Hann er fæddur 23. júní 1963 og er því 53 ára í dag.
Monty eins og hann er oft kallaður á metið i því að vera efstur á stigalista Evrópumótaraðarinnar 8 ár, þar af 7 ár í röð þ.e. á árunum 1993-1999. Monty hefir unnið samtals 40 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 31 sinnum á Evrópumótaröðinni, sem kemur honum í 4. sæti yfir þá sem unnið hafa flesta titla á þeirri mótaröð.
Monty er einn þeirra sem aldrei hefir unnið risamótstitil og olli það nokkrum deilum þegar hann var þrátt fyrir það tekinn í frægðarhöll kylfinga 2013.
Á móti kemur að Ryder Cup ferill Monty er með þeim glæsilegri (20-9-7) en hann hefir tekið þátt 8 sinnum með liði Evrópu og var fyrirliði sigurliðs Evrópu 2010. Hann komst ekki í Ryder Cup lið Nick Faldo 2008, en Faldo er sá eini (með 1,5 stiga forskot) sem er með betri árangur en Monty í Rydernum.
Monty hefir alltaf þótt mikill kvennamaður og hefir í gegnum tíðina allt eins verið í fréttum golffréttamiðla fyrir það og íþróttafrek sín. Hann var kvæntur Eimear Wilson (1990-2006) og á með henni 3 börn: Olivia, Venetia og Cameron. Síðan var Monty kvæntur Gaynor Knowles (2008-), en þau eru nú skilin að skiptum ef marka má slúðurblöð sjá t.a.m. með því að SMELLA HÉR:
Nokkuð sérstakt við Monty er að hann er flughræddur og reynir alltaf að keyra ef hann kemur því við fremur en að fljúga.
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Ben Sayers, 23. júní 1856; Samuel McLaughlin Parks, Jr., 23. júní 1909; Lawson Little, 23. júní 1910; Flory Van Donck, 23. júní 1912 (hefði átt 104 ára afmæli); Kári Sölmundarson,GO, 23. júní 1970 (46 ára); David Howell, 23. júní 1975 (41 árs); Roberto Castro, 23. júní 1985 (31 árs) ….. og …… Snaya. Snædis Thorleifsdottir, Arnór Harðarson 23. júní 1997 (19 ára).
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
