Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2016 | 22:30

Andri Þór flaug g. 1. stig úrtökumóts f. Opna breska – varð T-1!!!

Andri Þór Björnsson, GR, komst í gegnum fyrsta stig úrtökumótaraðar fyrir Opna breska meistaramótið, sem fram fer á Troon vellinum í júlí.

Andri sigraði á úrtökumóti sem fram fór í dag á Panmure vellinum í Skotlandi.

Andri Þór lék á 70 höggum eða pari vallar og deildi hann efsta sætinu með Alasdair McDougall frá Skotlandi. Aðeins fjórir kylfingar komust áfram af þessum velli en alls fóru tólf slík mót víðsvegar um Bretlandseyjar. Andri fær nú annað tækifæri á öðru úrtökumóti fyrir risamótið.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR,  lék einnig á þessum velli en hann lék á 75 höggum eða +5 og komst ekki áfram.

Sjá má lokastöðuna í úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: