Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2016 | 17:00

GK: Golf fyrir yngri krakka á Sveinkotsvelli

Í gær, 15. júní 2016 voru golfkrakkar í heimsókn frá Golfklúbbnum Oddi og Golfklúbbi Mosfellsbæjar hjá GK.

Leiknar voru níu holur á Sveinkotsvelli og var mikið fjör og gaman.

Leikið var eftir fyrirkomulagi frá USA sem nefnist PGA junior league. Þá leika 3-4 einstaklingar saman í liði eftir Texas Scramble fyrirkomulagi. Þau sem að léku saman í liði fengu boli í sömu litum til þess að efla liðsandann.

Tilgangur verkefnisins er að fá fleiri krakka til að fara út á völl og leika golf. Sigur er ekki meginmarkmið heldur er tilgangurinn að hafa gaman.

Í lokin var öllum boðið upp á pylsur og djús í veðurblíðunni.

Næsti hittingur er í lok júní á Bakkakotsvelli í Mosfellsbæ