Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Phil Mickelson – 16. júní 2016

Það er Phil Mickelson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Mickelson er fæddur 16. júní 1970 í San Diego, Kaliforníu og á því 46 ára afmæli í dag!!!

Mickelson er nú nr. 17 á heimslistanum og stendur sig mun betur þar en fyrrum aðalkeppinautur hans Tiger. Hann varð í 28. sæti á Opna bandaríska í fyrra og spenningur hvar hann muni lenda í ár.

Mickelson er í 9. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast PGA Tour mót (en Mickelson hefir sigrað í 42 slíkum mótum). Eins hefir Phil sigrað þrívegis á Masters (2004, 2006 og 2010); einu sinni á Opna breska (2013) og einu sinni á PGA Championship (2005). Mickelson er frægur fyrir að hafa 6 sinnum orðið í 2. sæti á Opna bandaríska.

Phil komst fyrir ári í fréttirnar fyrir að hafa stundað innherjaviðskipti í tveimur verðbréfamálum og sætti m.a. rannsókn FBI, en síðan kom í ljós að enginn fótur reyndist vera fyrir gruninum.

Sjá má 100 flottustu myndir af afmæliskylfingi dagsins með því að SMELLA HÉR: 

Phil er kvæntur Amy (giftust 1996) og eiga þau saman 3 börn: Amöndu (1999); Sophiu (2001) og Evan (2003)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Old Tom Morris, 16. júní 1821; Dagrún, 16. júní 1964 (51 árs); Harpa Ævarrsdóttir, 16. júní 1967 (49 ára); Sigurþór Ingólfsson, 16. júní 1970 (46 ára); Michael Kahn, 16. júní 1972 (44 ára) ….. og ….. Hraunsnef Sveitahotel

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is