Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2016 | 12:00

Íslandsbankamótaröðin: Eva Karen sigurvegari í stúlknaflokki

Það var Eva Karen Björnsdóttir, GR, sem sigraði á 1. móti Íslandsbankamótaraðarinnar í stúlknaflokki.

Íslandsbankamótaröðin fór fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 27.-29. maí 2016 og voru keppendur 113.

Fyrsti hringur féll niður í pilta- og stúlknaflokki vegna slæmskuveðurs, roks og rigningar.

Sigurskor Evu Karenar var 20 yfir pari, 164 högg (85 79).

Efstu 5 í stúlknaflokki voru eftirfarandi:

1. Eva Karen Björnsdóttir, GR F (85 79) +20
2. Ólöf María Einarsdóttir, GM F (89 77) +22
3. Saga Traustadóttir, GR F (83 85) +24
4. Freydís Eiríksdóttir GKG  F(84 85) +25
5. Laufey Jóna Jónsdóttir GS F(88 85) +29