Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2016 | 07:00

Íslandsbankamótaröðin 2016 (1): Fyrsta umferð hjá 17-18 ára féll niður

Mótsstjórn á fyrsta móti ársins á Íslandsbankamótaröð unglinga fundaði í gær, en þá átti að fara fram 1. umferð í flokki 17-18 ára á 1. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2016.

Mótsstjórnin tók þá ákvörðun að fella niður fyrstu umferðina af alls þremur í flokki 17–18 ára sem átti að fara fram í gær, föstudaginn 27. maí.

Þetta var gert þar sem veðurspáin var afar óhagstæð, en mótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru.

Spáð var mikilli úrkomu samhliða töluverðu hvassviðri.