Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2016 | 00:15

GK: Eimskip nýr styrktaraðili Keilis

Nú á dögunum skrifaði Eimskip undir styrktarsamning við Keili.

Eimskip hefur verið og er einn stærsti styrktaraðili að golfi á Íslandi.

Samningurinn inniheldur meðal annars heitið á nýju par 3 holunni, verðandi 15 braut sem opnuð verður á næsta ári.

Mun holan öðlast heitið “Yfir hafið og heim” sem er slagorð Eimskips.

Eimskip opnaði á dögunum stóra frystigeymslu í Hafnarfjarðarhöfn, Fjarðarfrost og geta kylfingar séð þennan glæsilega vinnustað vel frá teignum á holunni.

Eimskip bætist því í hóp góðra fyrirtækja, sem standa vörð um íþróttastarf Keilis.