Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hulda Birna Baldursdóttir – 23. maí 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Hulda Birna Baldursdóttir, en hún er fædd 23. maí 1973. Hulda Birna er PGA golfkennaranemi og framkvæmdarstjóri Stelpugolfs undanfarin ár. Afmæliskylfingurinn er gift Einari Erni Jónssyni og á 4 börn: Baldur, Margréti, Gabríel og Mikael.

Komast má á facebook síðu Huldu Birnu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Hulda Birna Baldursdóttir, GKG. Mynd: Golf 1

Hulda Birna Baldursdóttir (43 ára – Innilega til hamingju með afmælið!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: David Graham, 23. maí 1946 (70 ára STÓRAFMÆLI); Gary Dennis McCord, 23. maí 1948 (68 ára); Óskar Herbert Þórmundsson, 23. maí 1950 (66 ára);  Guðmundur Ingibergsson, 23. maí 1965 (51 árs); Árni Páll Árnason, 23. maí 1966 (50 ára STÓRAFMÆLI) Olga Gunnarsdottir, 23. maí 1968 (48 ára); Ellert Unnar Sigtryggsson, 23. maí 1970 (46 ára); Marina Arruti, 23. maí 1972 (44 ára) ; Jamie Elson, 23. maí 1981 (35 ára) ….. og …… Lars Søndergaard og Dalbær Snæfjallaströnd

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is