Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2016 | 09:45

Hver er kylfingurinn: James Hahn?

James Hahn sigraði s.l. sunnudag í 2. sinn á PGA mótaröðinni bandarísku, þ.e. á Wells Fargo Championship, sem venju skv. fer fram í Quail Hollow í Norður-Karólínu.

Hitt mótið sem vann Hahn er Northern Trust Open, sem leikið er  í heimaríki hans Kaliforníu, þ.e. í  Riviera golfklúbbnum í Pacific Palisades, í Kaliforníu. Sigurinn vannst í febrúar 2015.

Hahn hefir því sigrað tvívegis á PGA Tour.

En hver er James Hahn?

James Hahn

James Hahn

James Hahn fæddist 2. nóvember 1981 í Seoul, Suður-Kóreu og er því 34 ára .

Hann var í bandaríska háskólagolfinu og spilaði golf með golfliði University of California, Berkeley og þekkti Riviera völlinn, þar sem hann vann fyrsta PGA Tour sigur sinn, eins og handarbakið á sér.

Hahn gerðist atvinnumaður í golfi eftir útskrift árið 2003. Hann spilaði á kanadísku mótaröðinni, kóreönsku mótaröðinni og Gateway Tour áður en hann komst á undanfara Web.com túrsins þ.e. Nationwide Tour árið 2010.

Hann var nr. 29. á peningalista Nationwide Tour á nýliðaári sínu eftir að hann verið 5 sinnum meðal efstu 10 í mótum.

Þann 4. júní 2012 vann hann fyrsta sigur sinn á Nationwide Tour þ.e. Rex Hospital Open en sá sigur vannst eftir bráðabana við Scott Parel, s.s. frægt er en hann var inn á í 2 höggum á úrslita par-5 holunni vegna þess eins og hann sagði hann var alveg að missa af flugi.

Hann náði fluginu til Kaliforníu til þess að geta spilað í úrtökumóti fyrir Opna bandaríska risamótið daginn eftir.

Hahn vann bæði mótið og komst síðan á Opna bandaríska 2012.

James Hahn fagnar Gangnam Style á Waste Management Phoenix Open í febrúar 2013 - nú voru fagnaðarlætin minni yfir albatrossnum!

James Hahn fagnar Gangnam Style á Waste Management Phoenix Open í febrúar 2013

Hahn vakti athylgi á sér á Waste Management Phoenix Open mótinu 2013 þegar hann fagnaði fugli í „Gangnam Style“ – Sjá með því að SMELLA HÉR:

Af mörgu er að taka í glæsilegum ferli Hahn, en mjög eftirminnilegur er albatrossinn sem hann fékk á Sony Open, 2014 – Sjá með því að SMELLA HÉR:

Nú er annar PGA Tour sigurinn hjá Hahn í höfn!