Auður Elísabet Jóhannsdóttir, GR, sigurvegari í 1. flokki Opna Lancôme 8. maí 2016. Mynd: Golf 1 GHR: Auður Elísabet, Ásgerður Þórey og Hrönn sigruðu á Opna Lancôme
Hið árlega Lancôme kvennamót í golfi fór að venju fram á Strandarvelli, Hellu, í dag, 8. maí 2016, í dýrðarinnar veðri undir vökulu auga Heklu.

Hekla, 8. maí 2016. Mynd: Golf 1
Það voru 96 kvenkylfingar skráðir í mótið og luku 87 keppni.
Sem fyrr voru glæsilegar teiggjafir veittar í boði Lancôme, sem og vinningar að heildarverðmæti kr. 800.000,- og er við hæfi að þakka Termu heildverslun fyrir að styrkja mótið svo veglega á ári hverju með glæsilegum Lancôme snyrtivörum.
Leikið var venju samkvæmt í 3 forgjafarflokkum og eru úrslit eftirfarandi:
Úrslit í 1. flokki kvenna (fgj. 0-14):

Auður Elísabet Jóhannsdóttir, GR. Mynd: Golf 1
1 sæti Auður Elísabet Jóhannsdóttir GR (16 21) 37 punktar
2 sæti Anna Snædís Sigmarsdóttir GK (18 18) 36 punktar
3 sæti Sigríður Kristinsdóttir GR (13 21) 34 punktar
Úrslit í 2. flokki kvenna (fgj. 14.1 – 25):

Ásgerður Þórey Gísladóttir, GKG. Mynd: Golf 1
1 Ásgerður Þórey Gísladóttir GKG (17 22) 39 punktar
2 Guðrún Símonardóttir GM (19 20) 39 punktar
3 Auður Ósk Þórisdóttir GM (15 22) 37 punktar
Úrslit í 3. flokki kvenna (fgj. 25.1-36):

Hrönn Harðardóttir, GV. Mynd: Golf 1
1 Hrönn Harðardóttir GV (19 19) 38 punktar
2 Þórhalla Arnardóttir GÖ (20 18) 38 punktar
3 Ágústa Kristjánsdóttir GO ( 17 17) 34 punktar
Nándarverðlaun:
2. braut Kristi Jo Jóhannsdóttir, GR 2,3 m.
4. braut Berglind Björnsdóttir, GR 5,6 m.
8. braut Björg Traustadóttir, GFB, 2,45 m.
11. braut Sigríður Ingibjörg Sveinsdóttir, GM, 1,65 m.
13. braut Sigríður Kristinsdóttir, GR, 2,75 m.
Auk þess hlutu eftirfarandi 5 kvenkylfingar glæsilega skorkortavinninga: Bjarnheiður J. Guðmundsdóttir, GSE; Guðbjörg Jóhannsdóttir, GK; Kristín Súsanna Birgisdóttir, GSE; Soffía Ákadóttir, GKG og Þórunn Sigurðardóttir, GHR.
Ingunn Einarsdóttir, GKG, var á besta skorinu 5 yfir pari, 75 höggum, fékk 1 fugl, 11 pör og 6 skolla.
Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK og Berglind Björnsdóttir, GR voru á næstbesta skorinu í mótinu, 6 yfir pari, 76 höggum. Anna Snædís fékk 12 pör og 6 skolla, en Berglind, 2 fugla, 10 pör, 5 skolla og 1 skramba.
Golf 1 var á staðnum og mun myndasería úr mótinu birtast á morgun, 9. maí 2016.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
