Rory McIlroy and Jordan Spieth
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2016 | 12:00

Í golfi: Kurteisi kostar ekkert!

Nú þegar golfsumarið er handan við hornið er ekki úr vegi að rifja upp siðareglur golfsins.

Fyrir 5 árum fékk R&A írska kylfinginn Pádraig Harrington til þess að vera kynnir góðra siðareglna í u.þ.b. 10 mínútna löngu myndskeiði, sem nefnist “The Etiquette of Golf.”

Í myndinni fjalla ýmsir aðrir atvinnumenn, s.s. Tiger Woods, Lee Westwood, Paul Casey um helstu siðareglur golfsins.

Það að vera tillitssamur og góður félagi er það sem gerir golfhring ánægjulegan. Virðing, heiður og hefð eru nátengdar golfíþróttinni og það sem gerir hana svo einstaka.

Sjá má myndskeiðið hér að neðan: