Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2016 | 09:15

Tökuvélar staðsettar við „Frímerkið“

Komið hefir verið fyrir tökuvélum við Frímerkið (ens.: The Postage Stamp), sem er ein af goðsagnakenndum holum golfsins.

Frímerkið er á The Royal Troon þar sem 145. Opna breska fer fram 14.-17. júlí á þessu ári.

Brautin er eins og nafnið gefur til kynna með styttri holum í öllu keppnisgolfi, aðeins 133 yardar og spilast oft ekki nema 99 yardar eða 90,5 metrar.

Hún er svo sannarlega stysta holan í Opna breska risamótinu.

Claret Jug - verðlaunabikar Opna breska

Claret Jug – verðlaunabikar Opna breska

Holan var valin til sýninga í samráði R&A við Sky Sports, sem keypt hefir sýningarréttinn á mótinu.

Tökuvélar verða í öllum 5 bönkerum sem eru í kringum flötina til þess að sýna fram á hversu erfið hún er þó stutt sé.

Það var þar sem Gene Sarazen náði ási á Frímerkinu á Opna breska 1973 og verður lengi í minnum haft en listi fórnarlamba holunnar eru þó öllu lengri m.a. í Opna breska t.a.m. var þýski kylfingurinn Herman Tissies, á martraðar 15 höggum þar í baráttunni um Claret Jug 1950.

Frímerkið bara „öskraði á okkur að hún vildi vera aðalholan„“ sagði Rhodri Price, mótastjóri R&A, á blaðamannafundi sem haldinn var í R&A í aðdraganda elsta risamóts golfsins (Opna breska).

Vegna leikástands m.t.t. boltaflugs sérstaklega manna eins og Bubba Watson (ein mesta sleggja golfsins), þá er mjög erfitt venjulega að koma fyrir tökuvélum á völlum án þess að þær trufli leikinn.

Við vitum af þessu en m.t.t. hversu stutt Frímerkið er þá var hægt að koma fyrir tökuvélum á þessum goðsagnakenndum hluta golfvallarins sem veitir dásamlega sýn (á leikinn).