Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2016 | 18:00

Tiger tekur þátt í Opna bandaríska

Tiger Woods hefir skráð sig í Opna bandaríska og er talið að hann muni snúa aftur og hita upp á öðrum mótum  í maí fyrir risamótið .

Tiger þarf ekki í nein úrtökumót fyrir Opna bandaríska þar sem hann sigraði á mótinu 2008. En Woods á enn eftir að spila í móti á árinu, en hann hefir eins og allir vita verið að jafna sig eftir tvo bakuppskurði.

Alex Miceli hjá Golfweek skrifaði að Tiger hafi skráð sig 4. apríl í risamótið sem var löngu áður en skráningarfrestur rann út.

Þetta þýðir þó ekki að þetta verði fyrsta mót Tiger, en risamótið hefst í Oakmont og fer fram dagana 16.-19. júní.

Flestir eru á því að Tiger muni „hita upp“ í einhverju af þessum 3 eftirfarandi mótum: The Wells Fargo Championship í Quail Hollow (sem fer fram 5.-8. maí), the Players Championship (12.-15. maí) eða the Memorial (2.-5. júní).

Miceli telur mestu líkurnar á að Tiger komi til með að „hita upp“ fyrir Opna bandaríska á Memoríal en það mót hefir Tiger sigrað í 5 sinnum, síðast 2012.

Í síðustu viku skrifaði Tim Rosaforte á Golf Channel að Tiger hefði„æft 4-5 klukkustundir á dag í Medalist golfklúbbnum …. þ.á.m. spilaði hann nokkrar holurnar“ og að hann „liti frábærlega út, væri að tala við alla hress og gæti ekki hafa verið hamingjusamari.“

Woods spilaði í síðasta PGA Tour móti sínu í ágúst fyrir ári og hefir ekki sigrað mót síðan 2013 en það var á Bridgestone Invitational.