Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2016 | 13:00

GSÍ: Afrekshópur GSÍ tók æfingahring á Hellu

Afrekshópur GSÍ æfðu saman um s.l. helgi og voru þetta seinustu formlegu æfingabúðir GSÍ á þessu undirbúningstímabili. Hópurinn lék 18 holur á Strandarvelli hjá Golfklúbbi Hellu. Alls léku 35 kylfingar á þessum æfingahring og var hópnum skipt upp í tvö lið sem kepptu sín á milli.

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, segir ágætis veður hafa verið á Hellu, en vissulega hafi verið svalt. Völlurinn lofar góðu fyrir sumarið og þetta var fínn aukaundirbúningur fyrir fyrsta móitð á Eimskipsmótaröðinni, sem fer fram þar.

Við þökkum GHR kærlega fyrir góðar móttökur og að lána okkur rástíma fyrir hópinn. Úlfar vildi einnig koma á framfæri þökkum til Sportshússins og Önnu Rós sem buðu hópnum í Anti gravity jóga.

Til þess að sjá hverjir eru í afrekshóp GSÍ SMELLIÐ HÉR: