16. brautin á Augusta National – The Masters 2016: 17 staðreyndir f. 3. hring
Hér á eftir fara 17 staðreyndir fyrir 3. hring Masters risamótsins, sem fer fram nú í kvöld:
1 Engum kylfingi hefir tekst að vera með alla 4 hringina á 60 og eitthvað síðan 2007. Sú tölfræði verður óbreytt því engum kylfingi tókst að „breaka“ 70 á 2. hring einum í þessu, þ.e. 80. Masters risamótinu 2016.
2 Það eru 50 ár síðan að það voru 2 hringir þar sem engum kylfingi tókst að vera á skori upp á 60 og eitthvað. Á 3. og 4. hring á Masters mótinu 1966 var aðeins 9 kylfingum sem tókst að brjóta parið og aðeins 2 voru með hringi upp á 60 og eitthvað þ.e. Jack Nicklaus lék 1. hring á 68 og Paul Harney lék 2. hring á 68.
3 Það var aðeins 1 kylfingur sem græddi á skolla Jordan Spieth á 17. braut í gær, föstudaginn. Þegar Spieth fór úr 5 undir pari í 4 undir par þá færðist niðurskurðarlínan úr 5 yfir pari í 6 yfir pari …. og þessi 1 kylfingur sem græddi var Bubba Watson. Hann ætti að greiða þjórfé Spieth í klúbbhúsinu, finnst ykkur ekki? (Bubba gerir það eflaust ekki, enda þekktur fyrir að vera einstaklega nískur!)
4 Tveimur áhugamönnum tókst að komast í gegnum niðurskurð: Bryson DeChambeau frá Bandaríkjunum, sem þykir framtíðarstjarna og Romain Langasque frá Frakklandi sem líka komst í gegn með skor upp á 74-73. Vive la France?!?
5 Þremur kylfingum sem eru 50 ára og eldri komust í gegnum niðurskurð. Það eru tvöfaldi Masters sigurvegarinn Bernhard Langer, 58 ára, sem er aðeins 5 höggum á eftir forystumanninum Spieth. Davis Love III, 51 ára, er 2 yfir pari og aðeins 6 höggum á eftir Spieth og síðan er það Larry Mize, 57 ára, sem leikið hefir á 5 yfir pari og komst gegnum niðurskurð. Þetta er 2. skiptið á 3 árum sem Mize kemst gegnum niðurskurð.
6 Sergio Garcia hefir 4 sinnum áður verið á topp-10 þegar hann hefur 3. hring á Masters. Hann er nú T-8. Í þau skipti sem hann var líka á topp-10 var á árunum 2000, 2002, 2009 og 2012.
7 Sergio Garcia hefir aðeins 1 sinni verið meðal efstu 10 eftir 3. hring. Spurning hvað hann gerir í kvöld?
8 Meðalhöggfjöldi Garcia í þessum 4 hringjum sem hann hefir verið á topp-10 er 73.75. Hvaða lærdóm á að draga af þessu: Þeir sem gleyma sögunni, eru dæmdir til að endurtaka hana.
9 Dustin Johnson hefir 5 sinnum áður náð niðurskurði á Masters. Í ár er það 6. skiptið sem hann kemst í gegn.
10 Dustin Johnson hefir aldrei tekist að bæta stöðu sína á skortöflunni á 3. hring eftir að komast gegnum niðurskurð.
11 Jordan er T-28 og Rory T-20 í nákvæmni dræva (ens.: driving accuracy) eftir 2 hringi. Spieth hefir slegið 20 af 28 (71.43%) og McIlroy 21 af 28 (75 %).
12 Jordan T-40 og Rory T-18 í hittum flötum á tilskyldum höggafjölda eftir 2 hringi. Spieth hefir hitt 22 af 36 (61.11 %) og McIlroy hefir hitt 24 af 36 (66.67 %).
13 Jordan T-3 og Rory T-29 í púttum. Spieth hefir sett niður 55 (1.53 pútt að meðaltali á holu) og McIlroy hefir sett niður 60 (1.67 að meðaltali).
14 Rory og Jordan hafa 13 sinnum á milli sín orðið á topp-5 á Masters móti.
15 Rory og Jordan hafa 4 sinnum milli sín orðið meðal efstu 5 í síðustu 3 risamótum sem þeir hafa spilað í.
16 Rory eða Jordan hafa milli sín unnið 6 risamót.
17 Ekkert risamót hefir unnist af lokahollinum sex síðustu skipin.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
