The Masters 2016: Els sexpúttaði á 1. braut á 1. degi
Ernie Els, sigurvegari á 68 mótum þ.á.m tveimur Opnum breskum risamótum og tveimur Opnum bandarískum risamótum, gat ekki skýrt hvers vegna hann 6-púttaði eins og byrjandi á 1. hring Masters risamótsins í gær.
„Ég veit ekki …. ég veit ekki,“ sagði Els aðspurður um hvað gerðist. Það tæknilegasta sem kom frá honum var að hann hefði fengið nokkuð sem kallast ‘heebie-jeebies’ þegar hann stóð yfir boltanum.
Els var með 9 högg á 402 metra 1. holu Augusta national og það er alls ekki versta skorið á þeirri braut.
Öðrum hefir farnast jafnilla og verr en honum á undan t.a.m. Billy Casper (14), Tsuneyuki Nakajima (13) og Tom Weisskopf (13) sem allir hafa, eins og sjá má verið á verra skori. .
Sprengjur eru þekktar á Augusta National en venjulegast eiga þær sér stað í pressunni á lokahringnum á sunnudaginn en ekki á 1. holu í upphafi móts.
Forystumaðurinn 1. dags, Jordan Spieth sagði: „Mér líður illa fyrir hönd Ernie … ég hef svo sannarlega átt mín móment, við allir höfum átt þau […].
Sjá má sex-pútt Ernie á 1. holu Augusta National með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
