Hinrik Gunnar látinn
Á golf.is má lesa eftirfarandi frétt framkvæmdarstjóra GSÍ:
„Í fyrradag (24. mars – Greinin skrifuð 26. mars) bárust okkur þær fréttir að einn úr okkar hópi, Hinrik Gunnar Hilmarsson, hefði andast á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 57 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein sem hann hafði barist við með æðruleysi undanfarin misseri.
Hinrik starfaði fyrir Golfsamband Íslands frá árunum 2002 til 2007 og sinnti störfum sem markaðstjóri og var einnig í fararbroddi fyrir golfreglur og dómaramál á vegum Golfsambands Íslands. Sérþekking hans á golfreglunum var einstök og færði Hinrik golfhreyfingunni mikla fagmennsku á því sviði.
Hinrik var einn af þeim einstaklingum sem elskaði leikinn og lagði hönd á plóg víða innan golfhreyfingarinnar hvort sem það var í sínum heimaklúbbi Golfklúbbi Reykjavíkur eða við störf sín fyrir Golfsamband Íslands. Hinrik var alltaf reiðubúinn að aðstoða og lagði svo sannarlega sitt af mörkum við uppbyggingu og framfarir íþróttarinnar á Íslandi síðustu áratugi.
Svo lengi sem ég man eftir mér á ég minningar af „Hinna dómara“ uppi á hól eða í golfbílnum að vakta kylfinga við leik og ekki síður minnist ég hláturs Hinna á góðum stundum en hann fór ekki framhjá nokkrum manni.
Við í golfhreyfingunni kveðjum nú ærlegan og góðan félaga og ákaflega minnisstæðan mann sem við öll söknum á þessari stundu.
Fyrir hönd Golfsambands Íslands vil ég þakka Hinriki fyrir störf hans fyrir golfhreyfinguna og allar þær góðu stundir sem við fengum að njóta með honum.
Við vottum fjölskyldu og aðstandendum okkar dýpstu samúð
Með virðingu og þökk, blessuð sé minning Hinriks Gunnars Hilmarssonar
Fyrir hönd Golfsambands Íslands
Brynjar Eldon Geirsson“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
