Draumahöggið 2016! Frí gisting á Hótel Keflavík & Diamond Suites
Einherjaklúbburinn á Íslandi og Hótel Keflavík hafa gert með sér samkomulag sem ætti að hvetja alla kylfinga landsins til þess að miða enn betur á holuna á par 3 holunum á árinu 2016.
Í tilefni af 30 ára afmæli Hótel Keflavík sem og opnunar fyrsta 5 stjörnu hótels landsins, Diamond Suites, þann 17. maí næstkomandi þá fá allir þeir sem fara „holu í höggi„ á árinu 2016 gjafabréf upp á glæsilega gistingu fyrir sig og félaga sinn á Hótel Keflavík ásamt ljúffengum morgunverði.
Nauðsynlegt er fá afrekið samþykkt og skráð af Einherjaklúbbnum til þess að hljóta gjafabréfið.
Heimasíða Einherjaklúbbsins.
Að auki verður sérstakur 150.000 króna verðlaunapakki í boði fyrir þann sem fyrstur fer tvisvar sinnum “holu í höggi” á árinu. Sá sem það gerir fær gjafabréf upp á gistingu í einni af 5 stjörnu svítum Diamond Suites með einka heitum potti, einkabílstjóra á ferð um Reykjanesið, þriggja rétta kvöldverði fyrir tvo á KEF restaurant og að sjálfsögðu kampavín til að halda upp á afrekið.
Hótel Keflavík er fyrsta flokks hótel í miðbæ Reykjanesbæjar og var árið 2016 valið annað besta hótelið á Íslandi af TripAdvisor. Aðstaða fyrir ráðstefnu og árshátíðir er öll hin besta og er afþreying á svæðinu í miklu úrvali. Í Reykjanesbæ eru margir verðugir staðir til að heimsækja eða skoða sem og á Reykjanesi þar sem nokkrar af perlum íslenskra náttúru eru auk Hólmsvallar í Leiru, Bláa Lónið, Víkingaheimar, Orkuverið Jörð og svo mætti lengi telja.
Heimild: golf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
