Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2016 | 12:00

Pro Golf: Þórður Rafn varð í 28. sæti

Þórður Rafn Gissurarson, GR, lék á einu höggi undir pari samtals á þýsku ProGolf atvinnumótaröðinni sem fram fór í Marokkó.

Þórður lék lokahringinn á 74 höggum eftir að hafa leikið fyrstu tvo hringina á 70 og 71 höggi.

Hann endaði í 28. sæti og var ellefu höggum frá efsta sætinu en franskur kylfingur stóð uppi sem sigurvegari.

Þetta var sjötta mótið hjá Þórði á þessu tímabili á ProGolf mótaröðinni en mótaröðin er í hópi þriðju sterkustu atvinnumannadeilda í Evrópu á eftir Áskorendamótaröðinni og sjálfri Evrópumótaröðinni.