Lydia Ko segist eiga í ástar-haturs sambandi við „gæjann“ í lífi sínu
Nr. 1 Rolex-heimslistanum, Lydia Ko, segist eiga í ástar-haturs sambandi við gæjann í lífi sínu … en gæinn er enginn annar en pútterinn hennar!!!
Gæinn í lífi Ko heitir því Odyssey Tank Cruiser 330!!!
Þannig tvítaði hún í svari við spurningu eins aðdáenda hennar sem spurði hver væri uppáhaldskylfan hennar:
„My putter… It’s the guy in my life and we have a love/hate relationship„
Annað sem kom fram í spurningum, sem Ko svaraði, er að Phil Mickelson er uppáhaldskylfingurinn hennar og hún myndi vilja hafa hann í draumaholli sínu ásamt leikurunum Liam Neeson og Tom Hardy.
Aðspurð hvort hún væri hjátrúarfull sagðist hún vera það og það birtist í því að hún YRÐI að hlusta á tónlist í upphitunaræfingum og það sem væri efst á lista hjá sér væri músík með Adele, Justin Bieber, og Pharrell.
Litla stelpan frá Nýja-Sjálandi, sem heillað hefir heiminn með golfsnilli sinni, Lydia Ko, er fædd 24. apríl 1997 og verður því 19 ára í næsta mánuði!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
