Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2016 | 13:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2016: Rob Oppenheim (1/50)

Í fyrrahaust voru 50 „strákar“ sem komust á PGA Tour þ.e. þeir 25 sem voru efstir í 2. deildinni Web.com og svo 25 aðrir sem keppa á sérstöku 4 móta úrtökumótaröð Web.com Finals alls 50.

Sá sem rétt slapp inn og varð í 50. sætinu varð hinn 36 ára Rob Oppenheim frá Orlando, Flórída.

Aðeins munaði $ 101 á honum og þeim sem varð í 51. sætinu.

Rob Oppenheim fæddist 12. janúar 1980 í Salem, Masachusetts og er því 36 ára.

Hann er 1,78 m á hæð og 75 kg.

Hann spilaði fyrir skólalið Andover High School þar sem hann koms í  all-scholastic liðið. Hann var síðan í bandaríska háskólagolfinu og spilaði fyrir  Rollins College, þar sem hann var félagi í  Alpha Mu Delta of Chi Psi.

Árið 1999, kláraði hann hring upp á 16 á U.S. Amateur í Pebble Beach, Kaliforníu.  Meðan Oppenheim var í háskóla varð hann fjórum sinnum time All-American í golfi og árið 2002var hann leikmaður ársins í 2. deild háskólagolfsins (Division II golf). Árið 2002 var hann aðalmaðurinn í að koma skólaliði sínu, Rollins svæðismótið, NCAA Division II National Championship. Sama ár, 2002, sigraði Oppenheim líka á Massachusetts Amateur.

Rob Oppenheim

Rob Oppenheim

Atvinnumannsferill Oppenheim
Oppenheim gerðist atvinnumaður í september 2002. Síðan þá hefir hann spilað á Canadian Tour, Cleveland Tour, Hooter’s Winter Series, og Moonlight Tour.

Árið 2004, sigraði hann í 1. stigi f PGA Tour Q-School en náði samt ekki kortinu. Árið2005, var hann efstur á peningalista Cleveland Tour og leikmaður ársins. Árið 2006 varð hann í 2. sæti á peningalista Canadian Tour.

Oppenheim spilaði í tveimur PGA Tour mótum árið 2006 og varð T-108 í Deutsche Bank Championship og T-41 í Bell Canadian Open.

Hann reyndi að komast á PGA Tour í október 2008 í gegnum Q-school. Hann varð í 27. sæti þegar aðeins 23 komust áfram – þannig að hann hefir oft dansað á línunni og verið við það að komast inn á PGA Tour.

Árið 2009 komst hann á 2. deild PGA þ.e. Nationwide Tour (nú Web.com) þar sem hann hefir spilað allt til 2015.

Árið 2014 varð hann aðeins í 79. sæti á peningalistanum en varð síðan í 11. sæti í Web.com Tour Q-school og komst aftur á mótaröðina.

Hann vann fyrsta Web.com Tour mótið sitt í júlí 2015.  Hann varð samt 26. á peningalistanum og óheppinn eins og svo oft áður og munaði aðeins $943 á honum og Harold Varner III sem varð í 25. sæti og fékk síðasta PGA Tour kortið sem í boði var. Oppenheim vann hins vegar þátttökurétt á PGA tour í gegnum Web.com Tour Finals og átti $ 101 á Eric Axley, sem sat eftir með sárt ennið í 51. sæti, eins og áður segir.

Oppenheim rétt skreið inn á PGA Tour vegna þess að Lucas Glover fékk skolla á 18. holuna í lokamóti Web.com Finals, þ.e. Web.com Tour Championship en það varð til þess að Oppenheim lauk keppni T-12 og það rétt færði vinningsféð upp fyrir Eric Axley.  Svona er stundum hárfín lína milli lífs og dauða í golfinu.

Keppnistímabilið 2015-2016 er það fyrsta fyrir Oppenheim eftir að hafa spilað í 6 ár á Web.com Tour (og undanfara þess Nationwide Tour).