Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2016 | 09:00

Phil Mickelson ergilegur yfir veðmálasögu Ruffles

Golf 1 birti s.s. margir golffréttamiðlar frétt þess efnis að 17 ára ástralskur menntaskólastrákur Ryan Ruffles hefði unnið 5000 dollara í golfveðmáli gegn engum öðrum en sjálfum Phil Mickelson.

Rifja má upp fréttina með því að SMELLA HÉR: 

Phil hefir brugðist ergilega við þessari frétt, sem í raun birtist fyrst í viðtali Sydney Herald við Ruffles og fór síðan eins og eldur í sinu um allt.

Phil hafði eftirfarandi að segja um veðmálið:

Hann er ungur,” sagði Mickelson , „og hann á eftir að læra ýmislegt.“

Eitt er það að maður talar ekki um ákveðna hluti. Maður ræðir ekki í smáatriðum hvað er verið að spila um. Og maður slær sér ekki á brjóst og býr til rangar upphæðir bara í eiginn hagnaðarskyni. Þannig að það er það sem þetta snýst um – þetta er menntaskóla-„stuff „og hann verður að hætta þess nú þegar hann er á PGA Tour.“

Ruffles tekur nefnilega þátt í móti vikunnar á PGA Tour, Farmers Insurance Open og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig honum vegnar þar.“