Paul Azinger
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2016 | 10:30

Paul Azinger kemur í stað Greg Norman sem golffréttaskýrandi FOX Sports

FOX Sports er búið að ráða nýjan golffréttaskýranda – Paul Azinger.

Paul Azinger – er 12-faldur sigurvegari á PGA Tour, en hann sigraði m.a. árið 1993 á PGA Championship risamótinu og var fyrirliði sigurliðs Bandaríkjanna í Rydernum 2008.

Hann tekur við stöðu Greg Norman, skv. heimildarmönnum Golfweek, en reyndar var Golf Digest fyrst með þessa frétt.

Norman og FOX slitu samningum sameiginlega, þann 15. janúar eftir aðeins 1 ár Norman í starfinu.

Azinger hefir m.a. starfað með Nick Faldo á ABC Sports á árunum 2004-2006 og var nýlega hluti ESPN sem voru með lýsingar á eftirfarandi risamótum: The Masters, Opna bandaríska og Opna breska .

Á fyrsta ári sínu hjá FOX mun Azinger sjá um Opna bandaríska, U.S. Women’s Open kvenrisamótið og  U.S. Senior Open risamót öldungamótaraðarinnar, með Joe Buck, sér við hlið.