Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mike Hill ————- 27. janúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Mike Hill. Mike er fædur 27. janúar 1939 í Jackson, Michigan og á því 77 ára afmæli í dag. Hann var í Arizona State University og gerðist atvinnumaður árið 1967. Hann átti ágætis feril á PGA Tour, þar sem hann vann þrívegis. Stærsti árangur á lífsferli hans í golfinu kom þó eftir 50 ára aldrinum þegar hann sigraði 18 sinnum á the Senior PGA Tour (nú Champions Tour) og var m.a. á toppi peningalista Seniors Tour 1991. Mike er bróðir þekktari Hill-bróðursins, Dave Hill (f. 20. maí 1937-d. 27. september 2011).

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mike Hill, 27. janúar 1939, 77 ára (bróðir Dave Hill 20. maí 1937); Albert Woody Austin II, 27. janúar 1964 (52 ára); Dagmar Sigurðardóttir, 27. janúar 1967 (49 ára);  Jonathan Currie Byrd, 27. janúar 1978 (38 ára); Bryce Molder, 27. janúar 1979 (37 ára) ….. og…..  Saumakona Handcrafts

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is