Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2016 | 09:25

Lee Westwood selur $ 11 milljóna hús sitt í Flórída

Síðastliðið haust lýsti Lee Westwood því yfir að hann ætlaði að flytja tilbaka til Bretlands og myndi ekki keppa lengur á PGA Tour. Þetta kom í kjölfar skilnaðar hans við eiginkonu sína til margra ára, en hún flutti aftur „heim“ til Englands og tók börnin með sér.  Westwood hins vegar yngdi upp.

Ég hef alltaf sagt að ég væri með forgangsröðun og að golfið væri ekki það mikilvægasta, en augljóslega eru það krakkarnir mínir nú,“ sagði Westwood í viðtali við The Telegraph.

Ég flyst aftur til Englands, ég er búinn að gefa frá mér PGA Tour aðild mína og af persónulegum ástæðum mun ég nú aðallega spila á Evróutúrnum, þannig að ég geti verið þar sem ég þarf að vera.“

Því er glæsihýsi Westwood í Flórída nú til sölu.

Þetta er 10.000 ferfeta hús og kostar litlar $ 11 milljónir.  Það er fallegt, virkilega fallegt eins og sjá má af myndum og Westwood mun græða á sölunni því hann borgaði ekki einu sinn $ 6 milljónir fyrir það – þannig að verðmætaaukningin er nánast helmingur.

Hér má sjá myndir af húsinu:

10-a-Westwood4 11-a-Westwood2 12-a-Westwood3