Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2016 | 09:00

PGA: Dufner gæti þegar verið kominn með högg ársins!

Þótt það sé aðeins janúar 2016 gæti Jason Dufner þegar hafa slegið högg ársins á móti PGA Tour í sl. viku, þ.e. CareerBuilders Challenge in partnership with the Clinton Foundation.

Hann átti afleitt högg sem lenti í grjóti við par-3 17. holuna, einmitt þegar hann þurfti ekki á því að halda … eins og oft vill verða í golfinu.

David Lingmerth var búinn að sækja hart að honum og þeir voru efstir og jafnir fyrir lokaholuna.

Dufner varð helst að setja höggið niður en a.m.k. að ná pari, en boltinn var einfaldlega í erfiðri, ja að sumra mati ósláanlegri stöðu þarna í grjótinu.

En hvað gerir töffarinn Duff? Hann ákveður að nú sé að duga eða drepast, tekur höggið og setur næstum niður fyrir fugli!

Sjá má grjóthöggið glæsilega, sem að sumra mati er þegar orðið „högg ársins 2016″ þótt árið sé nýbyrjarð með því að SMELLA HÉR: