Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir – 24. janúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir, GO. Hún fæddist 24. janúar 1962. Jóhanna Dröfn hefir átt fast sæti fyrir hönd Golfklúbbsins Odds í kvennasveit GO og hefir tekið þátt í mörgum sveitakeppnum GSÍ á undanförnum árum, var m.a. í sveit GO sem vann 2. deild kvenna 2005. Af mörgu er að taka í golfferli Jóhönnu Dröfn en hún hefir sigrað í mörgum opnum mótum vann m.a. ára-mót GO 2009. Jóhanna Dröfn hefir setið stjórn í GO.

Jóhanna er dóttir Kristins Sigurpáls Kristjánssonar og á eina dóttur Lilju Valþórsdóttur. Eins er Jóhanna Dröfn systir Dóru Kristínar í GHD.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jón H Karlsson, 24. janúar 1949 (67 ára); Kim Saiki Maloney, 24. janúar 1966 (50 ára stórafmæli!!!); Hermann Hauksson, 24. janúar 1972 (44 ára); Aldilson da Silva, 24. janúar 1972 (vann í Sishen Golf Club á Vodafone Origins of Golf mótaröðinni á Sólskinstúrnum 2. september 2011 – 44 ára); Jason Knutzon, 24. janúar 1976 (40 ára stórafmæli!!!); Ingunn Einarsdottir, 24. janúar 1983 (33 ára); Antti Juhani Ahokas 24. janúar 1985 (31 árs); Anna Birna, 24. janúar 1987 (29 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem eiga afmæli í dag innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is