Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2016 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Nicole Jeray (13/49)

Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.

Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.

Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.

Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.

Alls hafa 9 stúlkur verið kynntar, 7 sem urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; en væntanlega hamingjusamar með að hljóta spilarétt og síðan Caroline Westrup og Samantha Richdale, sem deildu 41. sætinu.

Næstar verða kynntar þær 5 stúlkur sem deildu 36. sætinu og voru allar með heildarskor eftir 5 hringi upp á slétt par. Þetta eru þær Karlin Beck, Nicole Jeray og Ani Gulugian frá Bandaríkjunum; Anne-Catherine Tanguay frá Kanada og Ssu Chia Cheng frá Tapei höfuðborg Taíwan.

Karlin Beck, Ssu Chia Cheng og Ani Gulugian hafa þegar verið kynntar og í dag verður Nicole Jaray kynnt til sögunnar.

Nicole Jeray fæddist 11. október 1970 og er því 45 ára. Nicole byrjaði að spila golf 11 ára.

Hún segir móður sína, Cog Hill Golf and Country Club, George Lucas og Jody Keepers hafa haft mest áhrif á feril hans og Dr. Jim Suttie fyrir að hjálpa henni að komast aftur til keppni í golfi.

Nicole útskrifaðist frá Northern Illinois University með gráðu í fjármálum og viðskiptafræði 1992 (þ.e. fyrir 20 árum).

Hún var komin á LPGA 1994. Hún var vígð í frægðarhöll Northern Illinois University Hall of Fame á árinu 2002 og var sú yngsta til þess að hafa nokkru sinni verið vígð inn í frægðarhöllina.

Nicole þjáist af skyndimóki/höfgi (ens.: narcolepsy) og er mikill talsmaður fyrir Sleep Hygiene & Narcolepsy Awareness samtökin.

Meðal áhugamála hennar er að verja tíma með tveimur frænkum sínum og þremur frændum og með litla svarta og brúna dax-hundinum sínum, sem heitir Guinness.

Komast má á heimasíðu Nicole til þess að fræðast meira um hana með því að SMELLA HÉR: