Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2016 | 20:45

Afmæliskylfingur dagsins: Alfreð Brynjar Kristinsson – 22. janúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG. Hann fæddist 22. janúar 1985 og á því 30 ára afmæli í dag.

Klúbbmeistarar GKG 2013; Ragna Björk Ólafsdóttir og Alfreð Brynjar Kristinsson, Mynd: GKG

Klúbbmeistarar GKG 2013; Ragna Björk Ólafsdóttir og Alfreð Brynjar Kristinsson, Mynd: GKG

Alfreð Brynjar kemur úr mikilli golffjölskyldu; sonur hjónanna Kristins J. Gíslasonar, verkfræðings og Elísabetar M. Erlendsdóttur, ljósmóður. Alfreð á 4 systkini, Elínborgu, Lóu Kristínu, Kristinn Jósep og Ólafíu Þórunni, en síðastnefnda systir Alfreðs Brynjars er 3-faldur Íslandsmeistari í golfi 2011, 2013 og 2014 og spilar nú á LET, 2. íslenskra kvenkylfinga til þess að ná þeim árangri!

Alfreð Brynjar bjó í Danmörku í 10 ár. Hann byrjaði 12 ára gamall í golfi, vegna þess að hann vildi spila við föður sinn, Kristinn, sem alltaf var í golfi og eins var eldri bróðir hans Kristinn Jósep, mikil fyrirmynd. Aðrar íþróttir, sem Alfreð Brynjar lagði stund á voru handbolti (með Aftureldingu) og frjálsar. Alfreð Brynjar var kominn í unglingalandsliðið í golfi aðeins 3 árum eftir að hann byrjaði að spila golf og eftir það snerist allt um golf.

Alfreð Brynjar Kristinsson. Mynd: gsimyndir.net

Alfreð Brynjar Kristinsson. Mynd: gsimyndir.net

Meðal helstu afreka Alfreðs Brynjars er að verða klúbbmeistari unglinga í GKJ. Eins er hann klúbbmeistari GKG 2009 , 2011 og 2013. Alfreð Brynjar varð tvívegis klúbbmeistari unglinga í Himmerland GCC í Danmörku; vann Handelsskolemesterskabet í Danmörku; fór holu í höggi í Scottish Youth Championships, 17. júní 2005; spilaði í liði St. Andrews Presbyterian College, NC, í Bandaríkjunum; var kjörinn leikmaður ársins 2007-2008 af háskóla sínum eða “Most outstanding player in Mens Golf 2007-2008“ og vann sinn fyrsta sigur á Kaupþingsmótaröðinni á Akranesi, í móti 19.-20. maí 2007. Þjálfarar allra skóla í Conference Carolinas kusu hann „All Conference HONORABLE MENTION Men´s Golf 2008.“ Alfreð Brynjar var í 3. sæti á stigalista GSÍ 2008; stigameistari GSÍ 2009 og er í afrekshóp GSÍ 2012.

Alfreð Brynjar er kvæntur Hönnu Sesselju og þau eiga einn son og eina dóttur.

Alfreð Brynjar, Hanna Sesselja og sonur. Mynd: Í einkaeigu

Alfreð Brynjar, Hanna Sesselja og sonur. Mynd: Í einkaeigu

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Becky Pearson, 22. janúar 1956 (60 ára stórafmæli!!!); Ólöf Ásgeirsdóttir, GKG, 22. janúar 1959 (57 ára;  Barb Thomas Whitehead, 22. janúar 1961 (55 ára); Sigurbjörn Sigfússon, GK, 22. janúar 1968 (48 ára); Unnur Ólöf Halldórsdóttir, GB, 22. janúar 1973 (43 ára) Sigvarður Hans Hilmarsson, 22. janúar 1979 (37 ára);

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum, sem og öllum kylfingum sem afmæli í dag eiga innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is