Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2016 | 21:00

GKG: Íþróttakarl- og kona Kópavogs kjörin – kylfingar fengu viðurkenningar

Þann 11. janúar s.l. fór fram íþróttahátíð Kópavogs í Smáranum. Fanndís Friðriksdóttir knattspyrnukona úr Breiðabliki og Jón Margeir Sverrisson sundmaður úr Ösp/Fjölni voru kjörin íþróttakona og íþróttakarl Kópavogs fyrir árið 2015.

Birgir Leifur, sem var íþróttakarl Kópavogs 2014, var tilnefndur fyrir besta íþróttakarl Kópavogs 2015 og fékk viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri.

Sigurður Arnar Garðarsson, 13 ára, og Hulda Clara Gestsdóttir, 14 ára, fengu viðurkenningar fyrir 13-16 ára.

Golf 1 óskar kylfingum GKG innilega til hamingju með viðurkenningarnar!

Sjá má nánar frá verðlaunaafhendingunni með því að SMELLA HÉR:

Texti: Úlfar Jónsson