Morgan Pressel safnaði $1 milljón á móti sínu til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini
LPGA kylfingurinn Morgan Pressel hóaði í nokkrar vinkonur sínar af LPGA túrnum, sem þannig vill til að eru bestu og meðal bestu kvenkylfingar heims. Þetta voru þær Natalie Gulbis, Brittany Lincicome, Lexi Thompson, Cristie Kerr, Sandra Gal, Paula Creamer og Lydia Ko.
Þær komu saman á móti og söfnuðust $ 1 milljón dollara til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini, en móðir Pressel lést einmitt úr þeim sjúkdómi.
Pressel var vakandi til kl. 3:30 fyrir mót sitt Morgan & Friends Tournament. Ákefðin að gera betur á hverju ári er sú sama hvort heldur í golfinu eða í styrktarverkefnum hennar en hún hefir ávallt verið ákafur stuðningsmaður rannsókna á brjóstakrabbameini.
Styrkur frá ónafngreindum stuðningsaðila þann 11. janúar kom fjárhæðinni sem safnaðist á móti hennar í nýja metfjárhæð eða $ 1 milljón. Þetta er í 9. sinn sem Morgan & Friends mótið fer fram en samtals afrakstur af mótinu, sem runnið hefir til krabbameinsrannsókna er yfir $5 milljónir.
„Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera við þennan styrk og hafa þannig regluleg áhrif í samfélaginu og hjálpa konum,“ sagði Pressel á heimili sínu í Boca Raton, Flórída.
„Vonandi munum við einhvern daginn ekki þurfa að hafa áhyggjur af krabbameini lengur.“
Þetta kallar maður að nýta fríið sitt milli keppnistímabila til góðs. Pressel mun síðan endurgjalda einni vinkonu sinni greiðann en hún tekur á morgun, 14. janúar þátt í móti Brittany Lincicome – Brittany and Friends – til styrktar barna- og unglingauppbyggingastarfi í golfinu í heimabæ Brittany þ.e. það eru samtökin First Tee of St. Petersburg, sem verða styrkt.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
