Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2016 | 08:00

PXG gerir auglýsingasamninga við 8 þekkta kylfinga m.a. Cristie Kerr

Billjónamæringurinn Bob Parsons, stofnandi GoDaddy, hefur hafið framleiðslu á golfkylfum, sem nefnast PXG.

Þær selur hann fyrir u.þ.b. $5000  settið eða á um litlar 650.000 íslenskar krónur settið.

Að græða er ekki það sem ég hef í huga,“ sagði Parsons. „Markmið mitt er að hanna ótrúlegar kylfur án tillits til kostnaðar eða ferilsins. Ég hef verið að segja fólki frá því sem ég er að gera og hef oft heyrt viðkvæðið „Þú ert bilaður“. Það er mjög gott merki.“

Gerina Piller

Gerina Piller

PXG hefir gert auglýsingasamninga við 8 stórkylfinga þ.á.m. risamótsmeistarann Zach Johnson,  Billy Horschel, Chris Kirk, James Hahn og Charles Howell III , en þeir eru allir á PGA Tour, og eins Cristie Kerr, Alison Lee og Gerinu Piller á LPGA Tour.  Sjá má auglýsingu Cristie Kerr fyrir PXG með því að SMELLA HÉR: 

Alison Lee

Alison Lee

Þeir sem þegar eru að auglýsa PXG kylfurnar eru m.a. Rocco Mediate (Champions Tour), Sadena Parks og Beatriz Recari.