Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 31. 2015 | 18:00

Gleðilegt nýtt ár 2016!

Golf 1 óskar lesendum sínum svo og öllum kylfingum og landsmönnum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2016, með mörgum gleðistundum í golfi á komandi ári.

Golf 1 hefir nú verið starfandi í rúman 51 mánuð, þ.e. 4 ár , 3 mánuði og 6 daga og hafa á þeim tíma birtst um 14000 greinar, en þar af voru um 2700 skrifaðar á s.l. ári, 2015 sem þýðir u.þ.b. 7 greinar um golf að meðaltali á hverjum einasta degi 2015 og 9 greinar að meðaltali hvern einasta dag yfir 4 ára tímabil; sem er mesta fréttamagn á vefsíðu um golf á Íslandi.

Kylfingar innanlands, sem og vaxandi fjöldi erlendra kylfinga hafa tekið þessum yngsta golffréttavef Íslands framúrskarandi vel og umferð um vefinn ekkert nema aukist frá því hann hóf starfsemi 25. september 2011.

Á árinu var haldið áfram að skrifa greinar um Ísland, íslenskt golf og það sem íslenskt er á ensku og þýsku. Golf 1 hefir nokkra sérstöðu, þar sem hann er eini golfvefurinn í heiminum , sem skrifar á ensku og þýsku um íslenskt golf. Þess ber að geta að á sama tíma og skrifað hefir verið á ensku og þýsku á Golf 1 um íslenskt golf, hefir erlendum golfferðamönnum fjölgað, sem sækja Ísland og íslenska golfvelli heim.

Nokkra gleði vekur það jafnræði sem er í lesendahóp Golf 1, þar sem karlkylfingar eru þó aðeins í meirihluta lesenda eða 60% á móti 40% kvenkylfinga. Þessi prósentutala mætti gjarna endurspeglast í þátttöku kvenkylfinga í mótum sem og í aukinni þátttöku ungra stelpna í golfi. E.t.v. stuðlar jafnræði í umfjöllun um golfleik beggja kynja að því að áhugi kvenna á þátttöku í golfi glæðist og eykst. Ábyrgð fjölmiðla er þar mikil.

Það sem líklega ber hæst á golfárinu sem er að líða er að Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR, komst á næststerkustu golfmótaröð kvenna í heiminum, sem fyllir Golf 1, sem ávallt hefir staðið fremst varðandi umfjöllun um kvennagolf á Íslandi miklu stolti.  Það er vonandi að þessi framúrskarandi árangur Ólafíu Þórunnar verði til þess að aukning verði í golfiðkun ungra stelpna.

Margir af fremstu kylfingum Íslands voru að gera góða hluti á árinu og að öðrum ólöstuðum mætti e.t.v draga fram árangur Keiliskylfinganna Axels Bóassonar stigameistara GSÍ 2015, sem ávann sér þátttökurétt á Nordea mótaröðinni Tinnu Jóhannsdóttur, stigameistara kvenna í GSÍ 2015 og Signýar Arnórsdóttur, sem varð Íslandsmeistari í höggleik kvenna, eftir að hafa átt soninn Styrmi, sem sýnir að barnseignir íslenskra kvenkylfinga stöðvar þær ekki í að ná árangri á hæsta keppnisstiginu hér á landi.

Stefna Golf 1 er óbreytt eftir sem áður verður leitast við að hafa umfjöllun Golf 1 bæði um karl- og kvenkylfinga; bæði afrekskylfinga og almenna kylfinga, öldunga, sem og hina yngri og hvað hina yngri snertir mun Golf 1 að sjálfsögðu, líkt og undanfarin ár vera áfram sterkur miðill í umfjöllun um glæsileg börn og ungmenni, sem eru innan íslenskrar golfhreyfingar. Eflaust eigum við fremur fyrr en síðar eftir að sjá mörg þeirra á helstu mótaröðum heims!!!

Golf 1 var 2015 með fréttir um öll meistaramót golfklúbba á Íslandi 2015, sem á annað borð héldu slík mót og auk þess var af krafti fylgst með krökkunum okkar í háskólagolfinu í Bandaríkjunum, en flest ef ekki öll eru meðal fremstu afrekskylfinga landsins. Óhætt er að segja að flestar þær greinar voru og eru vinsælt fréttaefni og mun Golf 1 áfram flytja fréttir um framangreint.

Ofangreint sýnir aðeins eitt að kylfingar, íslenskir sem erlendir, virðast kunna að meta breidd í fréttaflutningi um golf. Hana mun Golf 1 reyna að færa sístækkandi hópi lesenda sinna.

Golf1.is fer nú í nýársdagsfrí og munu nýjar golffréttir ekki birtast fyrr en árla morguns á nýju ári, 2. janúar 2016.

Kærar þakkir fyrir frábærar viðtökur – Hafið það gott! – Komist öll slysalaust yfir ársskiptin með bestu óskum um heilbrigði og hamingju 2016.

Ragnheiður Jónsdóttir, ritstjóri Golf 1.