Jaclyn Jansen Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Jaclyn Jansen (5/49)
Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Verða þær allar kynntar og byrjað á þeim 7 sem voru svo heppnar að hljóta einhvern þátttökurétt á þessari sterkustu kvengolfmótaröð í heiminum þ.e. þeim Paz Echeverria frá Chile; Hönnuh Collier frá Bandaríkjunum; Jean Reynolds frá Bandaríkjunum; Ginger Howard frá Bandaríkjunum; Jaclyn Jansen frá Bandaríkjunum; Céline Herbin frá Frakklandi og Chie Arimura frá Japan.
Þessar heppu 7 stúlkur urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; en væntanlega hamingjusamar með að hljóta spilarétt. Þær rétt sluppu inn.
Hér verður Jaclyn Jansen kynnt, en áður hafa Hannah Collier, Ginger Howard og Jean Reynolds frá Bandaríkjunum og Paz Echeverria frá Chile verið kynntar.
Jaclyn Jansen fæddist 20. febrúar 1990 og er því 25 ára. Foreldrar hennar eru Jack og Jennifer Jansen.
Hún spilaði golf þegar í menntaskóla en hún var í St. Anthony’s High School í Effingham.
Besta höggið á vellinum var örn sem hún fékk þegar hún var aðeins 14 ára.
Jaclyn útskrifaðist síðan frá Baylor háskólanum árið 2011 með gráðu í viðskiptafræði. Hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu og má sjá afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

