Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Jean Reynolds (3/49)
Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Verða þær allar kynntar og byrjað á þeim 7 sem voru svo heppnar að hljóta einhvern þátttökurétt á þessari sterkustu kvengolfmótaröð í heiminum þ.e. þeim Paz Echeverria frá Chile; Hönnuh Collier frá Bandaríkjunum; Jean Reynolds frá Bandaríkjunum; Ginger Howard frá Bandaríkjunum; Jaclyn Jansen frá Bandaríkjunum; Céline Herbin frá Frakklandi og Chie Arimura frá Japan.
Þessar heppu 7 stúlkur urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; en væntanlega hamingjusamar með að hljóta spilarétt. Þær rétt sluppu inn.
Hér verður Jean Reynolds frá Bandaríkjunum kynnt en áður hafaPaz Echeverria frá Chile og Hannah Collier frá Bandaríkjunum verið kynntar.
Jean Reynolds fæddist 27. september 1984 og er því 31 árs. Hún byrjaði að spila golf 6 ára.
Reynolds spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of Georgia, þar sem hún lagði stund á fjölskyldufræði (ens. Child and Family Developement).
Reynolds útskrifaðist úr háskóla 2007 og strax árið 2008 var hún komin í 2. deild LPGA þ.e. Symetra Tour.
Í fyrra, 2014, tók hún þátt í Q-school LPGA og hlaut takmarkaðan þátttökurétt á mótaröðinni, líkt og nú.
Helstu áhugamál Reynolds utan golfsins eru tennis og borðtennis.
Sjá má yfirlit yfir helstu afrek Reynolds með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
