Valdís og Ólafía Golf
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2015 | 11:15

Ólafía og Valdís T-41 e. 3. dag – Valdís byrjar illa en Ólafía fikrar sig upp á við á 4. hring

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL þurfa að eiga frábæran hring í dag til þess að eiga möguleika á að vera meðal efstu 30 eftir lokahring lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð kvenna (LET = Ladies European Tour).

Eftir 3. keppnisdag deila þær 41. sætinu og verða að berjast til þess að halda sér meðal þeirra 60 sem fá að spila um 30 efstu sætin og helst bæta sig í dag!

Ólafía Þórunn lék 3. hring á 1 yfir pari, 73 höggum  og er því samtals á parinu eftir 3 leikna hringi (74 69 73).

Valdís Þóra lék 3. hring á 2 yfir pari, 72 höggum og var því einnig samtals á parinu eftir 3 leikna hringi (70 72 74).

Fjórði keppnishringur er hafinn.  Ólafía Þórunn fikrar sig hægt upp skortöfluna eftir að hafa leikið 1/3 af 4. hring er Ólafía í 35. sæti og er búin að spila 6 fyrstu holur 4. hringjar á 1 undir pari.

Valdís Þóra á hinn bóginn er nánast búin að spila sig úr mótinu er búin að fá 1 skolla og 3 skramba á fyrstu 6 holurnar og er komin 7 yfir par eftir 6 leiknar holur og fallin niður í 93. sæti á skortöflunni (þegar þetta er skrifað kl. 11:00 að íslenskum tíma 21/12 2015.

Til þess að sjá stöðuna á lokaúrtökumóti LET í Marokkó SMELLIÐ HÉR: