Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hafdís Alda Jóhannsdóttir – 17. desember 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Hafdís Alda Jóhannsdóttir. Hafdís Alda er fædd 17. desember 1997 og á því 18 ára afmæli í dag! Hafdís Alda er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.  Hafdís Alda er klúbbmeistari Golfklúbbs Hellu 2011, 2012 og 2013 í kvennaflokki. Sjá má eldra viðtal Golf1 við Hafdísi Öldu með því að SMELLA HÉR: ) Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hafdísi til hamingju hér að neðan

Hafdís Alda, GK. Mynd: Í einkaeigu

Hafdís Alda (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Rocco Mediate, 17. desember 1962 (53 ára ); Gunnar Þór Gunnarsson, 17. desember 1964 (51 árs); Tim Clark, 17. desember 1975 (40 ára stórafmæli!!!); Tracey Boyes, 17. desember 1981 (34 ára); Anton Helgi Guðjónsson, 17. desember 1993 (22 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is