Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Paz Echeverria (1/49)
Lokaúrtökumót LPGA, möo Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015 og lauk því fyrir tæpri viku.
Mótið fór venju skv. fram LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 45. sæti eða jafnar í því sæti hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan. Verða þær allar kynntar og byrjað á þeim 7 sem voru svo heppnar að hljóta einhvern þátttökurétt á þessari sterkustu kvengolfmótaröð í heiminum þ.e. þeim Paz Echeverria frá Chile; Hönnuh Collier frá Bandaríkjunum; Jean Reynolds frá Bandaríkjunum; Ginger Howard frá Bandaríkjunum; Jaclyn Jansen frá Bandaríkjunum; Céline Herbin frá Frakklandi og Chie Arimura frá Japan.
Þessar heppu 7 stúlkur urðu T-43 í lokaúrtökumótinu og voru neðstar af þeim sem hlutu þátttökurétt á LPGA; en væntanlega hamingjusamar með að hljóta spilarétt. Þær rétt sluppu inn.
Hér verður byrjað á að kynna Paz Echeverria frá Chile og þeim sem hlutu takmarkaðan þátttökurétt og endað á þeirri sem sigraði með yfirburðum 7 höggum á næstu tvo keppendur í lokaúrtökumótinu Simin Feng frá Kína.
Paz Echverria er kylfingur frá Santiago, Chile.
Hún fæddist í Chile 5. júlí 1985 og er því 30 ára.
Meðal hápunkta í ferli Paz er að hún var fimm sinnum valin kylfingur ársins í Chile (2006 – 2010). Paz hefir 5 sinnum verið í landsliði Chile í World Amateur (2002, 2004, 2006, 2008, 2010). Paz hefir 4 sinnum orðið chileanskur meistari í holukeppni (2003, 2005, 2009, 2010) og fimm sinnum í höggleik (2005, 2006, 2008 – 2010). Hún varð tvívegis suður-amerískur meistari í holukeppni, (2009, 2010). Hún varð í 11. sæti á HSBC LPGA Brasil Cup í Rio de Janiero, Brasilíu 2011.
Paz hefir aðallega spilað á Futures (nú Symetra) Tour í Bandaríkjunum frá árinu 2010, en hefir einu sinni áður hlotið takmarkaðan spilarétt á LPGA 2013.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
