Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2015 | 12:00

Hversu miklu varði Rory í trúlofunarhring sinnar heittelskuðu?

Rory McIlroy er einn af ríkustu íþróttamönnum heims og svo virðist að hann hafi látið trúlofunarhringinn tala þegar kom að því hversu mikið honum þætti til sinnar heitelskuðu og nýtrúlofuðu Ericu Stoll koma.

Erica Stoll og Rory (t.h.) ásamt vinafólki sínu Paddy og Tinu Wallace (t.v.)

Erica Stoll og Rory (t.h.) ásamt vinafólki sínu Paddy og Tinu Wallace (t.v.)

 

Golf 1 var fyrsti golffréttamiðillinn hér á landi sem greindi frá trúlofun þeirra Rory og Ericu. Sjá með því að SMELLA HÉR:  og með því að SMELLA HÉR: 

Nú hafa Rory og Erica staðfest gleðifréttirnar í sl. viku þegar fréttamenn sáu demantahlunk á hendi Ericu.

Hringurinn er metinn á  €600,000 (u.þ.b. 85 milljónir íslenskra króna) – sem er tvöfalt hærri fjárhæð en Rory varði á sínum tíma í trúlofunarhring sem hann gaf Caroline Wozniacki.

Caroline fékk 4 karata demantahring en Erica 5 karata; það skýrir verðmuninn og líka hvernig hann er slípaður í sporöskjulagað form.

Sá sporöskjulagaði er meira virði,“ sagði Hr. Seamus Fahy, sem er eigandi Voltaire Diamonds á King Street South, í Dublin en hann var beðinn að bera hringana saman.