GO: Ingi Þór endurkjörinn formaður
Aðalfundur Golfklúbbsins Odds fór fram í gærkvöldi, 8. desember í golfskálanum við Urriðavöll. Ingi Þór Hermannsson var endurkjörinn formaður GO en hann tók við formennsku í klúbbnum árið 2009. Stjórn GO var endurkjörin til áframhaldandi setu á aðalfundinum.
Ingi Þór þakkaði félögum traustið og sagði mjög spennandi tíma framundan í starfi Golfklúbbsins Odds. Minntist hann þar sérstaklega á að Evrópumót kvennalandsliða fer fram á Urriðavelli á næsta ári sem er mikill heiður fyrir Golfklúbbinn Odd og golfhreyfinguna á Íslandi. Það verður eitt stærsta verkefni sem Golfklúbburinn Oddur hefur tekið að sér.
Þörf á stækkun golfvalla á höfuðborgarsvæðinu
Jafnframt greindi Ingi Þór félagsmönnum frá framvindu mála varðandi stækkun Urriðavallar í 27 holur en nú er unnið að aðalskipulagi Garðabæjar fyrir tímabilið 2016-2030. Landeigendur hafa sýnt stækkun Urriðavallar mikinn áhuga og hafa unnið að því að koma sjónarmiðum varðandi stækkunina á framfæri við skipulagsyfirvöld í Garðabæ. Í því skyni hafa þeir kostað gerð deiliskipulags fyrirhugaðs svæðis og lagt fram sem sýn landeigenda á framtíðarnotkun svæðisins sem rúmist innan Aðalskipulags Garðabæjar.
Fram kom í máli Inga Þórs á aðalfundinum í gær að golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu væru nú orðnir yfirfullir og getur það reynst erfitt að fá rástíma á vinsælustu tímunum. Þörfin fyrir stækkun golfvalla á höfuðborgarsvæðinu sé því sannarlega til staðar sé horft 5 – 10 ár fram í tímann.
Vonir standa til að bæjaryfirvöld og hagsmunaaðilar taki vel í hugmyndir landeigenda og Golfklúbbsins Odds varðandi stækkun. Stefnt er að félagsfundi snemma á nýju ári þar sem stækkunarhugmyndir landeigenda verða kynntar ítarlega fyrir félagsmönnum.
Lítilsháttar tap
Rekstrartekjur Golfklúbbsins Odds á nýliðnu starfsári numu tæpum 160 milljónum og rekstrargjöld 161,6 milljónum. Áætlun gerði ráð fyrir 202 þúsund króna hagnaði. Stærsta frávik frá áætlun er hækkun launakostnaðar vegna nýgerðra kjarasamninga í vor sem nam tæpum 5% umfram það sem gert var ráð fyrir í áætlun. Fram kom í máli Þorvaldar Þorsteinssonar framkvæmdastjóra að stefnt væri að því að ná tilbaka tapi þessa starfsárs á því næsta og er gert ráð fyrir að skila 1,7 milljón króna rekstrarafgangi á næsta rekstrarári.
Samþykkt var hækkun árgjalda fyrir komandi starfsár.
Félagsgjöld GO 2016 verða með eftirfarandi hætti:
Einstaklingar 20-67 ára | 103.000 kr.-
Einstaklingar 67 ára og eldri | 75.000 kr.-
Börn og unglingar að 20 ára aldri | 31.000 kr.-
– Tvö systkini | 42.000
– Þrjú systkini | 53.000
– Fjögur systkini | 64.000
Inngöngugjald | 15.000
Félögum fjölgar
Félagar í Golfklúbbnum Oddi eru alls 1.202. Þar af eru 488 konur eða 41% félaga klúbbsins. Það er hæsta hlutfall kvenna í golfklúbbi á landinu en landsmeðaltal kvenna er rétt tæp 30%. 105 félagar eru með Ljúflingsaðild sem nýtur aukina vinsælda. 154 nýir félagar komu inn í klúbbinn á árinu 2015. Félögum fjölgaði um 62 á árinu 2015. Bókaðir hringir á Urriðavelli voru 23.506 síðastliðið sumar en voru 22.718 árið þar á undan. Það er tæp 4% fjölgun hringja á milli ára.
Sjá má ársskýrslu GO með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
