Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2015 | 08:00

Japanska sveitin sigraði á The Queens

Það voru gestgjafarnir japönsku sem höfðu forystu frá upphafi til enda þessa nýja móts  The Queens presented by Kowa.

The Queens er algerlega nýtt af nálinni en á því keppa sveitir 4 stærstu kvenmótaraða heims; LET, ALPGA, KLPGA og JLPGA.

Leikið var í Miyoshi Country Club, í Aichi, Japan og fyrir lokahringinn átti japanska sveitin 8 stig á þá kóreönsku. Leikið er með holukeppnisformi og er keppnin svipuð Solheim Cup.

Lokaúrslit urðu eftirfarandi:

1 JLPGA

2 KLPGA

3 LET

4 ALPGA

Mér er létt og ég er ánægð á sama tíma. Við unnum vel saman sem liðsheild og liðsandinn var lykillinn að góðu gengi á mikilvægum augnablikum,“ sagði fyrirliði japanska liðsins Momoko Ueda.