GR: Gerður Hrönn hlaut háttvísibikarinn 2015
Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig.
Gerður Hrönn Ragnarsdóttir hlýtur viðurkenninguna í ár. Gerður sýndi af sér mikinn drengskap þegar hún dæmdi sjálfa sig úr keppni í Opna Finnska unglingamótinu í sumar. Gerður áttaði sig á því eftir að hafa skrifað undir skorkort sitt að hún hafði skrifað undir rangt skor á einni holunni og fór beint í að tilkynna mistök sín vitandi að þeim fylgdi frávísun úr móti sem hana hafði hlakkað til að leika í í heilt ár. Með þessum gjörning sýndi hún hinn sanna anda golfsins. Gerður uppfyllir allar þær væntingar sem gerðar eru til þeirra leikmanna sem hjóta þessa viðurkenningu frá klúbbnum hún er því verðugur fulltrúi og handhafi Háttvísibikars klúbbsins og óskar Golf1 henni hjartanlega til hamingju.
Stutt yfirferð yfir árangur Gerðar á árinu 2015
-valin í afrekshóp GSÍ, afrekskylfingur samkvæmt forgjafarviðmiðum GSÍ
-var í verðlaunasæti á öllum mótum á Íslandsbankamótaröð GSÍ
-sigraði á tveimur mótum á Íslandsbankamótaröðinni
-5. sæti í meistaraflokki á Meistaramóti GR
-keppti á Opna finnska unglingamótinu
-Íslandsmeistari í sveitakeppni kvenna 2015
-var valin til keppni á European Young Masters fyrir Íslands hönd
-Stigameistari á Íslandsbankamótaröð GSÍ í flokki 15-16 ára
Er þetta í 12 skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:
2004 Þórður Rafn Gissurarson
2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir
2006 Guðni Fannar Carrico
2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2009 Andri Þór Björnsson
2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2011 Sunna Víðisdóttir
2012 Ragnhildur Kristinsdóttir
2013 Saga Traustadóttir
2014 Ingvar Andri Magnússon
[…] Golf 1 óskar Gerði til hamingju með Háttvísibikarinn 2015!
Texti og mynd: GR
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
